Íslensk útgáfuskrá

  Forsíða Töluyfirlit Um Íslenska útgáfuskrá Leit English
Leita í:
 
Útgáfuár:
-
 
Leita að:
 
Töluyfirlit
Útgefendur

Íslensk útgáfuskrá

Íslensk útgáfuskrá er tilraunaverkefni Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns. Birt er á vef skrá um efni útgefið á Íslandi. Skráin er dregin úr bókasafnskerfinu Gegni og spannar nú árin 1999-2007. Hún verður uppfærð reglulega og í henni birtist það efni sem til hefur náðst. Þar af leiðandi er hún breytileg og ekki tæmandi en sýnir á hverjum tíma bestu fyrirliggjandi upplýsingar.

Fyrst um sinn verða verk sem gefin eru út eða birt hér á landi, sbr. lög um skylduskil til safna, skráð í Íslenska útgáfuskrá eins og hér segir:

  • Verk sem gefin eru út á pappír: bækur og bæklingar (5 bls. eða meira), kort, ný blöð og tímarit. Nokkrar tegundir efnis eru undanskildar; sjá nánar Efni sem fellur utan Íslenskrar útgáfuskrár.
  • Hljóðrit: snældur, diskar
  • Samsettar útgáfur: t.d. bók og diskur

Fleiri tegundir efnis, svo sem örgögn, myndbönd, mynddiskar og verk útgefin á rafrænu formi, falla undir lög um skylduskil og eru skráð í Gegni. Það efni verður ef til vill tekið með í skrána síðar.

Bókfræðilegar upplýsingar
ISSN: 1670-715X

Allar athugasemdir t.d. um skráningu upplýsinga eða vefinn eru vel þegnar.
Ábendingar skulu sendar til utgafuskra@bok.hi.is

 
© Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn Síðast uppfært: 23. febrúar 2010 utgafuskra@bok.hi.is